Home Fréttir Í fréttum Opið útboð í byggingu Þjóðgarðamiðstöðvar á Hellissandi

Opið útboð í byggingu Þjóðgarðamiðstöðvar á Hellissandi

190
0
Ljósmynd: Snb.is Við upphaf framkvæmda við jarð- og girðingavinnu á lóð Þjóðgarðsmiðstöðvar þann 5. apríl 2019.

Ríkiskaup hafa auglýst byggingarútboð vegna framkvæmda við Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi.

<>

Upplýsingar um framkvæmd og helstu stærðir má finna hér að neðan en þess má geta að skilafrestur er til 5. maí n.k. hyggist verktakar sækja um framkvæmdina.

Um verkið:

Verkið felst í uppbyggingu nýrrar Þjónustumiðstöðvar í Þjóðgarði Snæfellsjökuls á Hellissandi. Bygging gestastofunnar mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Húsgrunnur nýbyggingar samanstendur af tveimur megin byggingum er tengjast með miðrými.

Hluti byggingar kragar út yfir grunna, þar sem ekki má valda yfirborðsskemmdum á landi umfram það sem óhjákvæmilegt er. Húsið er á einni hæð staðsteypt og stálvirki að hluta, klætt með lerki.

Búið er að grafa fyrir húsi, grafa og fylla í bílastæði og setja upp heildargirðingu fyrir verksvæðið, sem var framkvæmt í sérstöku jarðvinnuútboði. Jarðvinna í þessu verki felst í að fylla í sökkla, fylla að húsi, grafa og endurfylla í lagnaskurði undir og meðfram húsi.

Um jarðvinnu gildir að lágmarka skal allt jarðrask, þannig að yfirborð lands umhverfis mannvirkin verði eins ósnortið og mögulegt er. Í fyrra útboði var vinnusvæðið girt af.

Verktaki tekur við þessum girðingum, sér um að viðhalda þeim til að hindra óviðkomandi umferð fari um svæðið. Verktaki tekur á sama hátt við aksturshliði og gönguhliði og sér til þess að þau séu lokuð utan vinnutíma. Byggingarreiturinn er á hornlóð og liggur þjóðvegur í þéttbýli, Útnesvegur, með henni að norðanverðu. Norðan við þjóðveginn er íbúðabyggð Hellissands.

Helstu stærðir:

Brúttó flötur byggingar: 698 m²
Brúttó rúmmál: 2.400 m³,
Steinsteypa: 400 m³
Stálvirki: 24.000 kg.
Timburklæðning útveggja: 850 m²
Fyllingar: 1.200 m³

Heimild: Snb.is