Vegagerðin óskar eftir tilboðum í tvöföldun Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi ásamt tengingum við núverandi vegakerfi ásamt lengingu og breikkun á undirgöngum við Krókháls.
Verkið felst í:
Ljúka við gerð eystri akbrautar Suðurlandsvegar.
Tengja nýja akbraut í norður og suðurenda við núverandi vegakerfi.
Hækka brunna og tengja niðurföll við núverandi lagnir, uppsetning ljósastaura og vegriða.
Lengja og breikka núverandi undirgöng þar sem Krókháls fer undir Suðurlandsveg.
Helstu magntölur eru:
Verkhluti 8.01, Jarðvinna og vegagerð
Vegfylling | 6.900 m³ |
Fláafleygar | 2.600 m³ |
Ofanvatnsræsi | 100 m |
Breyting á hæð brunna | 20 stk. |
Hliðarniðurföll | 9 stk. |
Styrktarlag | 9.000 m³ |
Burðarlag | 3.750 m³ |
Tvöfalt malbik | 10.500 m² |
Einfalt malbik | 4.600 m² |
Gangstígar | 200 m² |
Bitavegrið | 3.400 m |
Strengur fyrir götulýsingu | 1.650 m² |
Uppsetning ljósastaura | 30 stk. |
Frágangur fláa | 18.500 m2 |
Verkhluti 8.02, Steypt undirgöng við Krókháls – lenging
Brot, rif og förgun á steyptum plötum og veggjum | 300 m² |
Mótafletir | 1.800 m² |
Steypustyrktarstál | 87.000 kg |
Steinsteypa | 750 m³ |
Fylling við steypt mannvirki | 700 m³ |
Brúarvegrið | 50 m |
Jarðvatnslagnir | 120 m |
Vatnsvörn steypu | 800 m² |
Vatnsvarnarlag | 500 m² |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.