Fjármálaráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu á Alþingi í dag um að fimmtán milljarðar króna fari í tímabundið fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Langmest fer í samgöngumannvirki og viðhald og endurbætur fasteigna.
Þingsályktunin er á grundvelli fjáraukalaga þessa árs og nær til 39 verkefna sem heyra undir ýmis ráðuneyti. Mest munar um framkvæmdir í samgöngumálum á þessu ári en áætlað er að 6,2 milljarðar fari í samgöngumannvirki.
Þar af fara tæplega 1,9 milljarðar í vegaframkvæmdir og hönnun, sinn hvor milljarðurinn í tengivegi og viðhald vega, 750 milljónir í hafnarframkvæmdir og 700 milljónir í breikkun brúa.
Í flugmálum munar mest um 350 milljónir í stækkun flughlaðs á Akureyrarflugvelli og gerð akbrautar fyrir flugvélar á Egilsstaðaflugvelli sem og 200 milljónir til stækkunar flugstöðvarinnar á Akureyrarflugvelli.
Þá fá Landhelgisgæslan til byggingar flugskýlis, áfangaheimili fyrir þolendur kynferðisofbeldis og öryggisvistun hver um sig 100 milljónir til nýbygginga.
Rúmlega 1,3 milljarðar fara í verkefni sem tengjast orkuskiptum, grænum lausnum og umhverfismálum. Til rannsókna, nýsköpunar og skapandi greina fara um 1,7 milljarðar, um 1,3 milljarðar til stafræns Íslands og upplýsingatækniverkefna og að lokum fara 1,6 milljarðar til annarra innviðaverkefna.
Þingfundur hefst klukkan 13:30 þar sem þetta er fyrsta mál á dagskrá og má reikna með að þingmenn leggi áherslu á að málið fái skjóta afgreiðslu.