Umhverfis- og tæknisvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Mýrin klórkerfi
Verkið felst í að leggja til og setja upp nýtt klórkerfi fyrir Sundlaugina í Mýrinni Skólabraut 8 í Garðabæ.
Helstu magntölur eru:
Lokað klórkerfi(Membran cell) sem getur stýrt klórstigi og ph gildi fyrir 184m³ sundlaug og 5m³ heitan pott.
Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi á vef Garðabæjar. gardabaer.is.
Helstu dagsetningar:
Útboðsgögn aðgengileg á vef Garðabæjar frá 24. mars 2020.
Afhending tilboða kl 14:00, miðvikudaginn 14. apríl 2020.
Verklok 1. september 2020.
Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 14. apríl 2020.