F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Yfirborðsmerkingar í Reykjavík 2020, útboð nr. 14785.
Helstu magntölur:
Mössun fletir: 4.600 m2
Mössun línur: 74.500 m
Stakar merkingar: 4.800 stk.
Bílastæðamálun: 9.000 m
Lokaskiladagur verksins er 15. október 2020.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 þann 20. mars 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 8. apríl 2020.