Home Fréttir Í fréttum Fram­kvæmda­stjóri Sorpu segir skýrsluna „ranga, ó­trausta og and­stæða fyrri yfir­lýsingum“

Fram­kvæmda­stjóri Sorpu segir skýrsluna „ranga, ó­trausta og and­stæða fyrri yfir­lýsingum“

128
0
Björn H. Halldórsson er ósáttur við skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnarhætti og starfsemi Sorpu. Mynd: Sorpa

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs., sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu, þar sem hann segir skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnarhætti Sorpu „ranga, ótrausta og andstæða fyrri yfirlýsingum hans um aðferðafræði við mat framkvæmda.“

<>

Fyrr í kvöld var greint frá því að stjórn Sorpu hefði samþykkt að „afþakka vinnuframlag“ Björns á meðan skoðun á 1,4 milljarða króna framúrkeyrslu á áætluðum framkvæmdakostnaði vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og móttökustöðvar í Gufunesi (GAJA) eru til skoðunar.

Stjórn Sorpu ákvað í október að fela Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að gera úttekt á starfsemi og stjórnarháttum félagsins í kjölfar mistaka við gerð fjárfestingaáætlunar félagsins, sem ollu framúrkeyrslunni.

„Á þeim 12 ára tíma sem undirritaður hefur gegn stöðu framkvæmdastjóra Sorpu bs. hafa aldrei verið gerðar athugasemdir við störf mín.

Á það m.a. við um framsetningu rekstraráætlana á stjórnarfundum, frávikagreiningu vegna þeirra og áætlanagerð vegna framkvæmda á vegum fyrirtækisins,“ segir í yfirlýsingunni.

Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, en ekki Sorpu
Segist Björn jafnframt hafna ávirðingum sem á hann séu bornar í skýrslu Innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar, og bendir á að embættið sé ekki innri endurskoðandi Sorpu og þekki „því takmarkað til fyrirtækisins eða starfsumhverfis og starfa [Björns].“

„Skýrsla innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar einkennist af röngum, ótraustum og samhengislausum ályktunum um forsendur og gæði starfa minna.

Við gerð skýrslunnar hafa t.d. verið dregnar veigamiklar ályktanir af skjölum sem aldrei hafa komið fyrir sjónir mínar. Sýnir það, eitt og sé, hversu óáreiðanleg skýrslan er.“

Þá segir Björn ýmsar ályktanir Innri endurskoðanda í andstöðu við áður yfirlýstar skoðanir hans í skýrslu um verklegar framkvæmdir hjá Reykjavíkurborg, sem gefin var út í mars á síðasta ári.

Þar komi fram að „algjörlega óraunhæft“ sé að miða kostnað mannvirkjagerðar við frumkostnaðaráætlun, eins og oft sé gert í fjölmiðlum. Nær sé að miða við kostnaðaráætlanir um fullhönnuð mannvirki.

Björn segir þetta einmitt hafa verið gert í skýrslu Innri endurskoðanda, það er að miða við „margra ára gamlar kostnaðaráætlanir sem Sorpa studdist við áður og jafnvel löngu áður en gas- og jarðgerðarstöðin var fullhönnuð.“

„Ef beitt væri sams konar samanburði og innri endurskoðandi telur rétt að gera í framangreindri skýrslu, og stuðst við áætlanir sem lágu fyrir þegar samið var við verktaka eftir samningskaupaferli (þá reyndar ekki fullhannað verk), væru frávik frá áætlun aðeins í kringum 11,7%,“ segir í tilkynningunni.

Sú tala væri innan almennra óvissuviðmiða um 10-15 prósenta frávik í aðra hvora átt.

„Væri því helst sanngjarnt að álykta að kostnaðaráætlanir hafi staðist vel fremur en illa.“

Að lokum segist Björn aðeins nýlega hafa fengið afhent þau gögn sem Innri endurskoðandi hafi aflað sér í tengslum við gerð skýrslunnar. Hann vinni nú að gerð athugasemda um hana. Þar til hann hafi lokið við gerð þeirra muni hann ekki tjá sig frekar um efni skýrslunnar.

Heimild: Visir.is