Home Fréttir Í fréttum Innbrot í Lambafellsnámu í Ölfusi

Innbrot í Lambafellsnámu í Ölfusi

247
0
ÍAV Lambafellsnáma

Brotist var inn í vinnuvél og vinnuskúr í Lambafellsnáma í Þrengslunum í Ölfusi og þaðan stolið verkfærum meðal annars rafsuðuvél.

<>

Þetta hefur gerst á tímabilinu frá kvöldi þriðjudags 16 júní  að morgni fimmtudags  18 júní.

Innbrotið er í rannsókn og biðlar lögreglan á Suðurlandi til allra sem veitt geta upplýsingar að koma þeim á framfæri í tölvupósti logreglan@sudurland.is. eða í síma 444 2010.