Home Fréttir Í fréttum 05.12.2019 Sveitarfélagið Skagafjörður. Leikskóli á Hofsósi – Viðbygging GAV

05.12.2019 Sveitarfélagið Skagafjörður. Leikskóli á Hofsósi – Viðbygging GAV

487
0

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Leikskóli á Hofsósi – Viðbygging GAV – Útboð 2019.

<>

Um er að ræða viðbyggingu við grunnskólann á Hofsósi, sem mun hýsa starfsemi leikskólans á staðnum, stærð um 206 m2.

Í verkinu felst uppsteypa og fullnaðarfrágangur byggingarinnar.
Um er að ræða steypt hús á einni hæð með flötu þaki, einangrað að utan og klætt með lituðu áli, gluggar og hurðir eru úr áli.

Lóðarfrágangur er ekki innifalinn í verkinu.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með föstudeginum 8. nóvember. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið atli@stodehf.is

Opnunartími tilboða er 5. desember. kl. 13:00