Home Fréttir Í fréttum Fyrsta áfanga að ljúka í Grunnskóla Borgarness

Fyrsta áfanga að ljúka í Grunnskóla Borgarness

128
0
Mynd: Borgarbyggð

Framkvæmdir í Grunnskóla Borgarness eru í fullum gangi og miðar vel áfram.

<>

Nú er verið að leggja lokahönd á frágang í eldhúsinu og verður það tekið í notkun í framhaldinu.

Mynd: Borgarbyggð

Viðbyggingin og endurnýjuð rými í fyrsta áfanga hafa þar með öll verið tekin í notkun.

Þar á meðal er ný heimilisfræðistofa, textílstofa, smíðastofa og aðstaða fyrir yngstu deildina ásamt fjölnota matsal.

Mynd: Borgarbyggð

Óhætt er að segja að mikil ánægjan sé meðal nemenda og starfsfólks með breytingarnar á húsnæðinu.

Ekki er þó öllum framkvæmdum lokið, en nú eru framkvæmdir hafnar við áfanga 2.

Í þeim áfanga verður ráðist í endurbætur á þeim hluta hússins sem hýsti m.a. bókasafnið og kennslustofur.

Heimild: Borgarbyggð