Home Fréttir Í fréttum Einungis hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti hjá Reykjanesbæ

Einungis hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti hjá Reykjanesbæ

96
0
Reykjanesbær

Frá og með 1. nóvember 2019 verður einungis hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti hjá Reykjanesbæ.

<>

Umsækjendur þurfa að skrá sig inn á íbúagáttina Mitt Reykjanes.

Til þess er að hægt að nýta Íslykil eða rafræn skilríki í síma.

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að aukinni rafvæðingu stjórnsýslu Reykjanesbæjar til að gera þjónustuna enn skilvirkari með því að fækka milliliðum.

Rafrænar umsóknir eru liðir í þeirri vinnu, segir í tilkynningu.

Heimild: Sudurnes.net