Home Fréttir Í fréttum 12.11.2019 Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019

12.11.2019 Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019

214
0
Bíldudalshöfn. Mynd: samskip.is

Hafnasjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í endurbygging og lenging Hafskipabryggju.

<>

Útboðið nefnist:
Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019

Helstu magntölur:
· Upptekt á grjóti, um 1.400 m³.
· Reka niður 117 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ24-700, AZ28-700 og AZ13-700.
· Ganga frá stagbita og stögum.
· Steypa 25 akkerissplötur.
· Steypa um 164 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
· Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 12.600 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 28 október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 12. nóvember 2019.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.