Home Fréttir Í fréttum 22.10.2019 Hvalfjarðargöng (1): Ljósleiðarakerfi, endurbætur

22.10.2019 Hvalfjarðargöng (1): Ljósleiðarakerfi, endurbætur

207
0
Mynd: RÚV

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í lagningu ljósleiðararöra ásamt lagningu ljósleiðara og tenginga í og við Hvalfjarðargöng.

<>

Verkið felur í sér lagningu ljósleiðararöra, uppsetningu fjarskiptaskápa, blástur og/eða ídrátt ljósleiðarastrengja ásamt tengingum þeirra í og við Hvalfjarðargöng.

Hvalfjarðargöng liggja undir Hvalfjörð og eru um 5,8 km löng. Ljósleiðarakerfið hefur það hlutverk að tengja saman allan þann búnað sem þarf að tala saman í göngunum ásamt að tryggja að öll fjarskipti innan ganga ásamt til og frá göngum gangi vel fyrir sig.

Ídráttur átta 12mm ljósleiðararöra í 75mm ídráttarrör 5.900 m
Ljósleiðari 4.230 m
Uppsetning á 50mm rörum í þak ganga við öll tæknirými 261 m
Fjarskiptaskápar í göngum 4 stk.
Tengihilla fyrir ljósleiðara í fjarskiptaskáp 12 stk.
(528 splæsingar í það heila í þessar 12 tengihillur)
Ljósleiðarasplæsingar 404 stk.
Mælingar á ljósleiðara HT

Verki skal lokið að fullu 29. febrúar 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 7. október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. október 2019.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.