Home Fréttir Í fréttum 16.07.2019 Bjargargata – Sturlugata. Gatnagerð og veitur

16.07.2019 Bjargargata – Sturlugata. Gatnagerð og veitur

303
0
Grósku, nýtt hugmyndahúss á sviði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni, verður 17.500 fermetrar að stærð.

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Bjargargata – Sturlugata. Gatnagerð og veitur, útboð nr. 14593

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í jarðvegsskiptum í sunnanverðri Bjargargötu, auk fráveitu og vatnsveitu.

Ennfremur í gerð fráveitu og vatnsveitu í Sturlugötu, ofanvatnslögn að Hústjörn og yfirborðsfrágangi í Sturlugötu og lagnaskurðum gegnum bílastæðin milli vestan Öskju.

Helstu magntölur eru:
• Upprif á föstu yfirborði 570 m²
• Uppgröftur 8.000 m³
• Malarfylling 4.000 m³
• Púkkmulningur, 200mm 435 m2
• Fráveita,
– lagnir 390 m
– niðurföll 2 stk.
– brunnar 4 stk.
• Kalt vatn 110 m
• Malbikun 500 m²

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 18:00 þann 28. júní 2019, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:10, þann 16. júlí 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is