Home Fréttir Í fréttum 12.06.2019 Grímarsstaðavegur (5317): Hvanneyri – Hvítárbrú

12.06.2019 Grímarsstaðavegur (5317): Hvanneyri – Hvítárbrú

267
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 5,8 km kafla Grímarsstaðavegar frá gatnamótum að Hvanneyri að Hvítárbrú, ásamt útlögn klæðingar.

<>

Helstu magntölur eru:

Fyllingar og fláafleygar 10.750 m3
Styrktarlag 9.850 m3
Burðarlag 6.500 m3
Tvöföld klæðing 38.400 m2
Frágangur fláa 63.500 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2020.

Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.