Framkvæmdir við nýjan veg yfir Berufjörð er kominn tvö hundruð milljónir fram úr fjárhagsáætlun. Vegagerðin er farin að sjá fyrir verklok en vegurinn á að leysa af síðasta malarkaflann á hringveginum.
Um þó nokkurra mánaðaskeið hefur Vegagerðin og verktakar reynt að koma í veg fyrir að tvö hundruð metra vegarkafli á nýrri fyllingu í Berufirði sígi en vegurinn yfir fjarðarbotninn hefur ítrekað gefið eftir þar sem botninn í firðinum er leirkenndur.
Framkvæmdir við nýjan veg og nýja brú yfir Berufjörð hófust í ágúst 2017. Vegurinn er 4,9 kílómetrar og brúin fimmtíu metrar. Áætlað var að verklok yrðu í september á síðasta ári. Vegurinn hefur enn ekki verið tekinn í notkun.
Anna Elín Jóhannsdóttir, verkfræðingur og deildarstjóri hjá Vegagerðinni á Austfjörðum segir þó að farið sé að hylla undir lok verkefnisins.
„Í næstu viku erum við að klára að setja farg á sjófyllinguna sem hefur sigið og fargið er sett á í þremur lögum og þegar búið er að setja fargið á, að þá er tveggja til fjögurra mánaða biðtími sem að tekur við til að ná fram langtíma sigi,“ segir Anna.
Vegna þeirra vandamála sem upp hafa komið á framkvæmdatímanum hefur kostnaður farið fram úr áætlunum. Heildar kostnaður verksins var áætlaður um einn komma einn milljarður en við bætist um tvö hundruð milljónir vegna frekari framkvæmda og tafa.
Eruð þið búin að koma í veg fyrir þetta jarðsig?
„Já. Nú hefur jarðsigið hætt. Það er bara svona eðlilegt sig sem að á sér stað þegar þú ert að fergja. Tekur svona sentimeter og sentimeter. Við erum ekki að missa niður hálfan til heilan meter í einu eins og gerðist í vetur,“ segir Anna.
Vegna jarðsigsins þurfti að fara í frekari efnistöku á svæðinu sem Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við.
„Verkefnið fór í umhverfismat 2011. Þá var áætlað að efnistakan yrði sjötíu og tvö til níutíu þúsund rúmmetrar. Vegagerðin klikkaði því miður á að tilkynna Skipulagsstofnun um breytingar á efnistökunni. Það var ljóst að efnismagnið var umfram umhverfismatið og það var ljóst í rauninni alveg frá upphafi, sem sagt það var meira magn sem þurfi til að fara með veginn svona yfir sjóinn,“ segir Anna.
Eruð þið farin að sjá fyrir verklok?
„Já, Við áætlum að verklok verði í lok sumars og þá verður lokið við að klæða þennan síðasta malarkafla á hringveginum,“ segir Anna.
Heimild: Visir.is