Landsnet óskar eftir tilboðum jarðvinnu og lagningu jarðstrengja.
Verkið felst í því að grafa fyrir og leggja 66 kV jarðstreng, Neskaupstaðarlínu 2 og fjarskiptarör um 17,6 km leið milli tengivirkjana á Eskifirði og Neskaupstað.
Einnig að draga strenginn í rör sem búið er að leggja í Norðfjarðargöngin, um 8 km langan hluta lagnaleiðarinnar.
Grafa fyrir og leggja 132 kV jarðstreng frá tengivirkinu á Eyvindará, Eskifjarðarlínu 1, um 1,7 km leið að nýju endamastri á ES1 loftlínu.
Allar nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða birt á útboðsvef Landsnets í síðasta lagi miðvikudaginn 17. apríl 2019