F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Vesturbæjarskóli – Endurbætur á lóð 1. áfangi – Útboð nr. 14508.
Verkið felst í:
Endurnýjun á eldri lóð í kringum Vesturbæjarskóla. Helstu verkþættir eru: Gröftur, förgun, upptaka, girðingar, pallaklæðning, snjóbræðsla, nýjir ljósastólpar, hellulögn, ræktunarsvæði og leiktæki.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Grúsfylling m3 750
Förgun á hellum m2 865
Pallaklæðning m2 215
Snjóbræslulagnir m 3000
Hellur og steinar m2 1950
Plöntur Stk 1060
Leiktæki Stk 3
Verklok 15. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá mánudeginum 15. apríl 2019.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. maí 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is