Verið er að leggja lokahönd á fimmtíu íbúðir í Bríetartúni 9-11 og til stendur að afhenda þær í lok febrúar.
Þetta segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður fasteignaþróunarfélagsins Eyktar.
Samkvæmt söluvef Höfðatorgs eru 40 íbúðir af 94 óseldar í íbúðaturninum. Af þeim 54 sem eru seldar er heimild fyrir skammtímaleigu í 38 þeirra.
Að sögn Péturs keyptu ýmsir aðilar íbúðirnar 38, bæði einstaklingar og félög.
Pétur segir að töluvert sé verið að skoða íbúðirnar sem eru óseldar og kveðst til að mynda eiga von á tilboðum í tvær til þrjár fyrir helgi.
Hann segir það venjulega þannig í fasteignabransanum að íbúðir fari að seljast þegar nær dregur afhendingu og kveðst vera ánægður með gang mála til þessa.
Bríetartún 9-11 er tvö sambyggð fjölbýlishús og kosta íbúðirnar að meðaltali 64 milljónir króna. „Þetta er ekki dýrt miðað við gæðin,“ segir Pétur aðspurður og nefnir að í íbúðunum sé vatnsúðakerfi, hiti í gólfi og svalalokanir.
Heimild: Mbl.is