Home Fréttir Í fréttum Vonir standa til að hægt sé að reisa hundrað íbúðir í Hörgársveit...

Vonir standa til að hægt sé að reisa hundrað íbúðir í Hörgársveit á næstu árum

307
0
Skjáskot af visir.is

Vonir standa til að hægt sé að reisa hundrað íbúðir í Hörgársveit á næstu árum. Sveitarfélagið er á meðal sjö sveitarfélaga sem valið var í sérstakt tilraunaverkefni um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni.

<>

Markmið tilraunaverkefnisins er að leita nýrra leiða til að bregðast við húsnæðisvandanum sem ríkir víða á landsbyggðinni og í Hörgársveit eru menn klárir í slaginn að sögn sveitarstjórans Snorra Finnlaugssonar.

„Við erum tilbúin með tvö þéttbýli þar sem við höfum skipulagt lóðir þannig að við erum mjög vel í stakk búin að taka þátt í svona verkefni,“ segir Snorri.

Gert er ráð fyrir um níutíu íbúðum á Lónsbakka, rétt fyrir utan Akureyri og fimmtán íbúðum á Hjalteyri við Eyjafjörð.

Reiknað er með að í vor hefjist framkvæmdir á þrjátíu til 45 íbúðum á Lónsbakka enda þörfin brýn.

„Það hefur verið skortur á íbúðum hér á þessu svæði eins og víða annars staðar á landsbyggðinni og hefur staðið alls konar uppbyggingu fyrir þrifum að hafa ekki haft nóg af íbúðum.“

Seinni áfangi uppbyggingarinnar gerir ráð fyrir öðru eins byggingarmagni og gerir Snorri sér vonir um að tilraunaverkefnið muni liðka fyrir uppbyggingu seinni áfangans.

„Það auðveldar á þann hátt að þegar kemur að seinni áfanganum þá horfa menn kannski frekar til þess að vera í samstarfi við leigufélög eða húsbyggingarfélög, eða húsnæðissamvinnufélög eða eitthvað slíkt um uppbyggingu smærri íbúða.

Þetta svæði er einmitt skipulagt sem slíkt.“

Íbúar í Hörgársveit eru um sex hundruð en menn gera sér vonir um að rjúfa þúsund íbúa múrinn þegar áætlaðri uppbyggingu verði lokið. Standa vonir til þess að með því að byggja smærri íbúðir sé hægt að laða til sín yngra fólk.

„Það eldist, samfélagið, þannig að við horfum svolítið til þess að fá yngra fólkið inn,“ segir Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Heimild: Visir.is