Home Fréttir Í fréttum 08.01.2019 Víkingur – Gervigrasvöllur, keppnislýsing

08.01.2019 Víkingur – Gervigrasvöllur, keppnislýsing

125
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Víkingur – Gervigrasvöllur, keppnislýsing, útboð nr. 14375

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á endurgerðan aðalvöll með gervigrasi á íþróttasvæði Víkings í Reykjavík. Verktaki skal hanna og skila útreikningum sem sýna að lágmarkskröfum sé náð. Verktaki skal hanna lýsinguna í samræmi við kröfur staðalsins ÍST EN 12193:2007 um lýsingu á fótboltavelli utanhúss skv. Class I.
Gert er ráð fyrir 24m háum ljósamöstrum á hornum vallarins.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 12:00 þriðjudaginn 11. desember 2018.          Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. janúar 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is