Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á 4,8 km hluta Snæfellsnesvegar (54) um Fróðárheiði, frá núverandi slitlagsenda við Valavatn að vegamótum við Útnesveg.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 86.000 m3
- Fyllingar 105.000 m3
- Fláafleygar 55.000 m3
- Styrktarlag 19.000 m3
- Burðarlag 6.500 m3
- Tvöföld klæðing 39.200 m2
- Ræsalögn 500 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 5. nóvember 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. nóvember 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.