Home Fréttir Í fréttum 20.11.2018 Hverfið mitt 2018 austurhluti, heit vaðlaug í Grafarvogslaug

20.11.2018 Hverfið mitt 2018 austurhluti, heit vaðlaug í Grafarvogslaug

648
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2018 austurhluti, heit vaðlaug í Grafarvogslaug – útboð nr. 14362

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Í þessu verki er um að ræða byggingu á heitri vaðlaug í Grafarvogslaug en verkefnið hlaut kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2018 í austurhluta Reykjavíkurborgar.
Verkið felst m.a. í jarðvinnu, hellulögn, uppsteypu (steypumót, bendistál, steypa), flísalögn, lagningu lagna að og frá vaðlaug ásamt nauðsynlegum búnaði í kjallara sundlaugar, lagningu snjóbræðslulagna, smíði og uppsetningu handriða o.fl.

Verklok: 30. apríl 2019

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 7. nóvember 2018.   Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 20. nóvember 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is