Home Fréttir Í fréttum Miklar framkvæmdir við Urriðavatn á Héraði

Miklar framkvæmdir við Urriðavatn á Héraði

204
0
Miklar framkvæmdir standa nú yfir við Urriðavatn skammt frá Egilsstöðum þar sem nýr baðstaður er að taka á sig mynd. Daglega munu þúsund gestir geta baðað sig þar í fljótandi laugum og keypt veitingar úr drykkjarhæfu hitaveituvatni.

Undir Urriðavatni í Fellum eru æðar með heitu vatni og er jarðhitinn nýttur til að kynda hús á Egilsstöðum og í Fellabæ.

<>

Nú stendur til að nýta jarðhitann enn frekar og hófust framkvæmdir við nýja baðstaðinn Vök í lok maí. „Framkvæmdir ganga mjög vel; við erum um það bil að fara að steypa gólfplötu í helmingnum af húsinu.

Það er sem sagt búið að reisa helming hússins og við stefnum ótrauð á að opna eins og áætlun gerði ráð fyrir næsta sumar í júní-júlí.

Stærðin á byggingunni er yfir þúsund fermetrar og búningsklefarnir rúma tvö hundruð skápa, þannig að með aðgangsstýringu komum við hérna í gegn á degi hverjum vel rúmlega þúsund manns,“ segir Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths.

Jarðhitinn undir Urriðavatni uppgötvaðist á sínum tíma vegna þess að svokallaðar Tuskuvakir héldust á vatninu sama hvernig frysti. Þjóðsögur sögðu frá dularfullri skepnu sem kölluð var Tuska og ferðaðist um vakirnar og einnig vatnahesti, svonefndum nykri.

„Kjarnaupplifun verkefnisins eru laugar sem verða úti í vatninu sem við kjósum að kalla vakir en þar er stefnan að líkja eftir þeim vökum sem mynduðust hérna á Urriðavatni á árum áður þegar ísinn lagði.

Rauði þráðurinn er heita vatnið okkar, þetta heita vatn sem er eina vottaða heita vatn til drykkjar á Íslandi og við ætlum að nýta það í veitingahlutann. Meðal annars í bjór, það er búið að framleiða fyrir okkur sérstakan heitavatnsbjór,“ segir Heiður.

Þá verður heita vatnið nýtt í grauta, te og til að hægbaka brauð, og áhersla lögð á mat úr Héraði. Starfsmenn verða allt að tólf talsins og búist er við 65 þúsund gestum fyrsta árið.

Heimild: Ruv.is