Home Fréttir Í fréttum Fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði

Fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði

274
0
Mynd: Vísir/Vilhelm

IÐAN fræðslusetur og Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins ætla að standa fyrir fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði á næstu mánuðum.

<>

Fyrsti fundurinn verður miðvikudaginn 24. október nk. kl. 8.30 – 10.00 í húsnæði IÐUNNAR í Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Hvers vegna gæðastjórnunarkerfi – hver er ávinningurinn? er yfirskrift þessa fyrsta fundar.

Fundarstjóri er Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs.

Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8.15.

Dagskrá:
Jón Guðmundsson, fagstjóri bygginga hjá Mannvirkjastofnun

Guðrún Ólafsdóttir, gæðastjóri VHE

Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvols

Fyrirspurnir og umræður

Heimild: Si.is