F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Grófarhús viðbygging. Frágangur utanhúss. Útboð nr. 14309.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Tryggvagata 15 er í daglegu tali kallað Grófarhús en það hýsir Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Verkið felst í fullnaðarfrágangi utanhúss á viðbyggingu, þ.e.a.s. þak og veggjum. Útveggir viðbyggingarinnar verða glerjaðir í álkerfi en þak er svokallað „upside down“ þak. Viðbyggingin er uppsteypt. Innifalið í verkinu er einnig að setja upp stigagang á milli allra hæða ásamt öðrum fallvörnum sem mun standa þar til endanlegum frágangi verður lokið. Annar frágangur innanhúss er ekki áformaður á þessu stigi.
Helstu magntölur:
- Gluggar og gler – ca. 315 m2
- Ál-klæðning – ca. 225 m2
- Þak – ca. 140 m2
- Þaksvalir – ca 50 m2
- Hringhurðir (tromlur) – 2 stk
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 9:00 þann 4. september 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 18. september 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is