Home Fréttir Í fréttum Uppbygging hafin á kaup­félagsreitnum í Mosfellsbæ

Uppbygging hafin á kaup­félagsreitnum í Mosfellsbæ

238
0
Mynd: ASK arkitektar

Framkvæmdir eru nú hafnar við Bjarkarholt 8-20 sem kallað hefur verið kaupfélagsreiturinn.

<>

Vinna við niðurrif sjoppu og gamla kaupfélagsins er hafin og skipulagsnefnd og bæjarstjórn hafa samþykkt byggingaráformin og byggingarleyfisumsókn er nú í yfirferð hjá embætti byggingarfulltrúa.

Miðað er við að á reitnum rísi fjögur fjölbýlishús á þrem til fimm hæðum. Gert er ráð fyrir allt að 65 íbúðum fyrir 50 ára og eldri og verslunarrými á götuhæð einnar byggingarinnar
Arkitektar húsanna eru ASK arkitektar og Landhönnun og við hönnun er stuðlað að grænni ásýnd umhverfisins.

Mynd: Mosfellingur.is

Þannig verða flest bílastæði í bílageymslu og gert er ráð fyrir að hægt verði að hlaða rafmagni á bíla á svæðinu. Þá er gert ráð fyrir að lágmarki tveimur stæðum fyrir reiðhjól á hverja íbúð.

Heimild: Mosfellingur.is