Home Fréttir Í fréttum 17.07.2018 Akraneskaupstaður. Vitastígur Breið og stígur við Garðalund

17.07.2018 Akraneskaupstaður. Vitastígur Breið og stígur við Garðalund

151
0

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í stígagerð á Breið og við Garðalund á Akranesi. Skila skal verkinu fyrir 30. september 2018.

<>

Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir:

  • Útbúa nýjan steyptan stíg niðrá Breið
  • Útbúa nýjan malbikaðan hjóla- og göngustíg við Garðalund.

Helstu stærðir:

  • Jarðvegsskipti um  3000 m3
  • Steyptur stígur 750 m²
  • Malbikaður stígur 510 m²

Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi frá og með miðvikudeginum 27. júní með því að senda tölvupóst á netfangið stigagerd@akranes.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs. Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð, þriðjudaginn 17. júlí 2018 kl. 10:00.