F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Grandaskóli – Múrviðgerðir utanhúss II áfangi 2018 – Útboð nr. 14281.
Verkið felst í:
Múr- og steypuviðgerðum ásamt endursteiningu og tilfallandi glugga- og hurðaviðgerðum.
Helstu magntölur eru:
| Verkþáttur | Ein. | Magn |
| Háþrýstiþvottur og steinrif flata | m2 | 540 |
| Alhreinsun kjallara | m2 | 60 |
| Endursteining | m2 | 540 |
| Múrhúðun kjallara | m2 | 60 |
| Gluggaviðgerðir | m | 20 |
| Endurfúgun milli karms og steins | m | 255 |
| Endurnýjun vatnsbretta | m | 65 |
Verklok eru 15. nóvember 2018.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 fimmtudaginn 21. júní 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. júlí 2018.












