Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2018, Höfuðborgarsvæði – Reykjanes.
Helstu magntölur:
-Útlögn malbiks 72.000 m2
-Hjólfarafylling 30.000 m²
-Fræsing 17.000 m2
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 23. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 5. júní og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.