F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sandskipti 2018 – Vestur (hverfi 2 – 3) Útboð nr. 14239
Verkið sem hér um ræðir er að skipta um sand í sandkössum sumarið 2018 á stofnanalóðum í hverfum 2 og 3 á vegum Reykjavíkurborgar. Hverfaskipting miðast við hverfasskiptingu borgarinnar hjá Umhverfis-og skipulagssviði.
Samtals er um að ræða um 42 stofnanalóðir með samtals 82 sandkössum og er heildarflatarmál þeirra um 3.150 m2.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 16. apríl 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 30. apríl 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is