Home Fréttir Í fréttum 17.04.2018 Háaleitisskóli-Hvassaleiti. Endurgerð lóðar – Yfirborðsefni

17.04.2018 Háaleitisskóli-Hvassaleiti. Endurgerð lóðar – Yfirborðsefni

308
0

Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar Háaleitisskóla-Hvassaleiti við Stóragerði 11A, 108 Reykjavík.  Verkið er yfirborðsefni fyrir 2. áfanga endurgerð lóðar grunnskólans Háaleitisskóla-Hvassaleiti við Stóragerði 11A, 108 Reykjavík.

<>

Bjóðandi sér um að útvega og ganga frá yfirborðsefnum kringum leiktæki og á önnur öryggissvæði eða sérstakar merkingar í yfirborð.

Verktaki á vegum verkkaupa sér um alla jarðvinnu fyrir yfirborðsefnin.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 23. mars 2018.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 17. apríl 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is