Tilboð opnuð 20. mars 2018. Endurbætur Þingvallavegar (36) frá Þjónustumiðstöðinni að vegamótum við Vallaveg. Lengd útboðskafla er um 8,3 km. Verkið felst í styrkingu og breikkun núverandi vegar með áherslu á að auka umferðaröryggi. Fræsa skal núverandi klæðingu, breikka og hækka / lækka veginn eftir atvikum og leggja nýtt malbik. Sérstök áhersla er lögð á endurheimt staðargróðurs í vegfláa. Vinna skal efni til verksins í námu í Svartagili norðan við Þjónustumiðstöð. Verktími skiptist á árin 2018 og 2019.
Helstu magntölur eru:
- Efnisvinnsla 18.700 m3
- Skeringar 17.000 m3
- Fyllingar 10.000 m3
- Fláafleygar 5.500 m3
- Styrktarlag 10.800 m3
- Burðarlag 18.700 m3
- Malbik 6 cm 66.500 m2
- Upptaka, geymsla og frágangur gróðurtorfa 39.000 m2
- Frágangur fláa 40.000 m2
- Ídráttarrör 8.300 m
- Vegrið 892 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2019.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 714.576.000 | 107,6 | 226.279 |
Munck Íslandi ehf,., Kópavogi | 689.634.351 | 103,9 | 201.337 |
Áætlaður verktakakostnaður | 664.000.000 | 100,0 | 175.703 |
Mjölnir, vörubifreiðastjórafélag, Selfossi | 535.146.000 | 80,6 | 46.849 |
Suðurtak ehf., Selfossi | 516.273.000 | 77,8 | 27.976 |
ÍAV hf., Reykjavík | 514.369.692 | 77,5 | 26.072 |
Þróttur ehf., Akranesi | 491.457.610 | 74,0 | 3.160 |
Þjótandi ehf., Hellu | 488.297.265 | 73,5 | 0 |