Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sementsfestun á Biskupstungnabraut (35) 2018.
Helstu magntölur eru:
- Burðarlag 0/22 958 m3
- Sementsfestun 46.494 m2
- Klæðing 49.920 m2
Verki skal að fullu lokið 15. júní 2018.
Útboðsgögnin verða seld í hjá Vegagerðarinnar Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 13. mars 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. mars 2018 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.