Home Fréttir Í fréttum Óvíst hvort Súðavíkurgöng verði á næstu áætlun

Óvíst hvort Súðavíkurgöng verði á næstu áætlun

176
0
Mynd: Einar Rafnsson - RÚV
Ekki er ljóst hvort jarðgöng á milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar, Súðavíkurgöng, verði á samgönguáætlun sem gildir frá árinu 2019 til 2030. Þetta kom fram í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, þingmanns Framsóknarflokks.

Í svari ráðherrans kemur fram að í samgönguáætlun fyrir tímabilið 2015 til 2026 sé miðað við að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni eftir að gerð Dýrafjarðarganga lýkur haustið 2020. Nú sé hafin vinna við endurskoðun þeirrar áætlunar og er reiknað með að ný áætlun fyrir 2019 til 2030 verði lögð fram á þingi næsta haust. „Ekki er á þessari stundu hægt að segja neitt um það hvort jarðgöng milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar verði þar inni,“ segir í svari samgönguráðherra.

<>

Í svari samgönguráðherra kom jafnframt fram að ekkert hafi verið unnið að rannsóknum á gerð ganga milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar á síðasta ári sökum anna við upphaf Dýrafjarðarganga og lok Norðfjarðarganga. Unnið verði að skipulagi vinnu við Álftafjarðargöng á þessu ári.

Heimild: Ruv.is