Home Fréttir Í fréttum Boðuðu framkvæmdir fyrir 79 milljarða á útboðsþingi SI

Boðuðu framkvæmdir fyrir 79 milljarða á útboðsþingi SI

232
0
Útboðsþing SI

Nokkru minni framkvæmdir voru boðaðar af hálfu opinberra aðila á útboðsþingi SI í ár heldur en síðustu ár.

<>

Á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins kynntu fulltrúar 10 opinberra aðila að fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á þeirra vegum myndu nema samtals 79 milljörðum íslenskra króna.

Útboðsþingið var haldið í Háteig á Grand Hótel Reykjavík síðastliðinn föstudag, og sóttu hátt í 200 manns þingið, og var fullt út úr dyrum að því er segir á heimasíðu SI, en þar er jafnframt hægt að sjá myndir af þinginu. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI var fundarstjóri útboðsþingsins.

Um nokkuð minna umfang framkvæmda er að ræða en kynnt hefur verið á útboðsþingum síðustu ára, árið 2017 voru boðaðar framkvæmdir fyrir um 90,5 milljarða.

Árið 2016 voru boðaðar framkvæmdir fyrir um 100 milljarða, sem var veruleg aukning frá árinu á undan.

Fyrirhugaðar framkvæmdir opinberra aðila sem kynntar voru á þinginu:

• Reykjavíkurborg – 18 milljarðar króna
• OR Veitur – 6,9 milljarðar króna
• Orka náttúrunnar – 4,31 milljarðar króna
• Landsvirkjun – 8,6 milljarðar króna
• Landsnet – 9 milljarðar króna
• Framkvæmdasýsla ríkisins – 12,9 milljarðar króna
• Faxaflóahafnir – 2,12 milljarðar króna
• Kópavogsbær – 3,72 milljarðar króna
• ISAVIA – 2,5 milljarðar króna
• Vegagerðin – 11 milljarðar króna

Heimild: Vb.is