Home Fréttir Í fréttum Rétt rúmlega 1500 íbúðir byggðar af 9000 íbúðaþörf

Rétt rúmlega 1500 íbúðir byggðar af 9000 íbúðaþörf

99
0
Mynd/Reykjavíkurborg

búðalánasjóður hefur ákveðið hverjir hljóta 1.800 milljónir króna í stofnframlög frá sjóðnum til byggingar svokallaðra leiguheimila. Um er að ræða framlög ríkisins vegna byggingar og kaupa á um 370 hagkvæmum leiguíbúðum víða um land.

<>

Í úthlutuninni nú eru meðal annars stofnframlög til byggingar 244 námsmannaíbúða sem samsvarar 10% fjölgun slíkra íbúða á landsvísu. Íbúðalánasjóður hefur nú þegar úthlutað alls 4,6 milljörðum króna á síðastliðnum 12 mánuðum. Fyrir upphæðina verða byggðar og keyptar alls um 900 íbúðir ætlaðar til útleigu fyrir tekjulága og eignalitla.

Íbúðir fyrir námsmenn í meirihluta

Að þessu sinni eru íbúðir fyrir námsmenn í meirihluta og fengu byggingaraðilarnir að vita af úthlutuninni fyrir helgi. Stofnframlögin nema að minnsta kosti um 18% byggingarkostnaðar og því mun þessi eina úthlutun upp á 1,8 milljarða hafa í för með sér byggingu leiguíbúða fyrir ríflega 10 milljarða króna.

Þetta er þriðja úthlutun stofnframlaga frá því að Alþingi samþykkti að styrkja uppbyggingu leiguíbúða þar sem greidd er hagstæðari leiga en almenn býðst. Alls hafa nú verið veittir 4,6 milljarðar króna vegna byggingar og kaupa á um 900 íbúðum sem byggingarfélögin skuldbinda sig til að leigja út til tekjulágra og eignalítilla, námsmanna, aldraðra eða fólks með fötlun.

Stefnt skal að því að leiguverðið fari ekki yfir 25% af heildartekjum þeirra.

Í Hlíðunum, Vogabyggð og við Öskjuhlíð

Í úthlutuninni nú voru veitt stofnframlög til byggingar 244 námsmannaíbúða. Um er að ræða 100 íbúðir Byggingarfélags námsmanna við Stakkahlíð og 144 námsmannaíbúðir byggingafélagsins Grunnstoðar við Nauthólsveg. Til samanburðar eru námsmannaíbúðir á landinu öllu nú um 2.400 talsins og því munu þessi tvö verkefni hafa í för með sér 10% fjölgun námsmannaíbúða á landsvísu.

Þá hlýtur Bjarg íbúðafélag jafnframt stofnframlög vegna byggingar 112 íbúða, meðal annars í Vogabyggð í Reykjavík, auk þess sem Leigubústaðir Árborgar, Dalvíkurbyggð og Norðurþing hljóta framlög, meðal annars vegna íbúða fyrir fólk með fötlun.

Íbúðalánasjóður mun halda áfram að úthluta stofnframlögum til byggingar og kaupa á leiguheimilum í samstarfi við sveitarfélög. En sveitarfélög leggja almennt til um 12% byggingarkostnaðar til móts við stofnframlög Íbúðalánasjóðs. Á árunum 2016-2022 er áætlað að úthlutað verði framlögum vegna samtals 3.200 íbúða og að heildarkostnaðurinn við uppbyggingu þessa nýja húsnæðiskerfis verði ríflega 80 milljarðar króna.

Rétt rúmlega 1500 íbúðir af 9000 íbúða þörf mætt

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs segir uppbyggingu leiguheimila vera mikilvægan þátt í því að efla húsnæðisöryggi landsmanna. „Við þurfum að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaði. Staðan er enn mjög slæm,“ segir Hermann.

„Fólksfjölgun hefur verið hraðari sem eykur enn eftirspurn eftir húsnæði. Við höfum talað um að það þurfi um 9000 íbúðir inn á markaðinn en í fyrra fjölgaði íbúðum á Íslandi aðeins um 1.580. Það er vissulega meira en síðustu ár en samt ekki nærri nóg til að mæta þörfinni.

Leiguheimilin eiga að gagnast þeim sem verðhækkanirnar bitna harðast á. Ríki og sveitarfélög leggja til eigið fé til þessara framkvæmda sem þýðir að við fáum 80 milljarða króna í uppbyggingu húsnæðis sem leigt verður út á sanngjörnu verði. Þetta mun að mínu mati gerbreyta húsnæðismarkaðnum fyrir þá hópa sem verst standa.“

Heimild: Vb.is