Home Fréttir Í fréttum Árborg lækkar gjöld á byggingar

Árborg lækkar gjöld á byggingar

82
0
Árborg lækkar gjöld á byggingar
Byggingarréttargjald af atvinnhúsnæði var fellt niður. mbl.is/Sigurður Bogi

Árborg lækkar gjöld á byggingar

Sveitarfélagið Árborg hefur lækkað byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og afnumið gjöldin af atvinnulóðum. Markmiðið með þessum aðgerðum er að einfalda gjaldskrá, auka sveigjanleika í greiðslum af íbúðarlóðum og hvetja til uppbyggingar atvinnulóða.

„Það var eitt af stefnumálum okkar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor að lækka álögur og gjöld eins og mögulegt væri hjá sveitarfélaginu,“ segir Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar við Morgunblaðið. Í síðustu kosningum vann Sjálfstæðisflokkurinn stórsigur og er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn.

Segir hann að byggingarréttargjöld af íbúðalóðum hafi lækkað um 30-40%, mismunandi eftir byggðakjörnum í sveitarfélaginu. Byggingarréttargjaldið var um 8.000 krónur fyrir hvern fermetra á dýrustu svæðunum.

Var greitt ákveðið lágmarksgjald þegar farið var af stað með byggingu, en síðan greitt m.v. hvern byggðan fermetra. Byggingarréttargjaldið af íbúðarhúsnæði á Selfossi var lækkað úr 35.000 krónum á fermetra niður í 25.000, en gjaldið fór úr 25.000 niður í 10.000 í dreifbýli ásamt Eyrarbakka og Stokkseyri.

Heimild: Ruv.is

Efni: Árborg lækkar gjöld á byggingar