
Alda tekin að rísa úr Fossvoginum
Mikilvægur áfangi í byggingu Fossvogsbrúarinnar Öldu, sem ná mun yfir voginn frá Kársnesi í Kópavogi yfir í Nauthólsvík í Reykjavík, náðist á dögunum þegar lokið var við að bora alla staura brúarinnar niður í hafsbotninn. Þar með er einum umfangsmesta hluta undirstöðuvinnunnar lokið, eins og Guðjón Örn Björnsson verkefnisstjóri útskýrir fyrir blaðamanni Morgunblaðsins, sem heimsótti byggingarstað fyrr í vikunni.
Verkið er hluti af fyrstu lotu borgarlínu. Brúin er ætluð borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Alda verður 270 metra löng og allt að 17 metra breið.
Heimild: Mbl.is
Efni: Alda tekin að rísa úr Fossvoginum











