Home Fréttir Í fréttum Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega

Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega

44
0
Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega
Laugardalslaug Stúkan var reist árið 1968 en örlög hennar eru óljós. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Afdrif stúkunnar ráðast fljótlega

Reykjavíkurborg metur nú hvort ráðast eigi í viðhald á stúkunni við Laugardalslaug eða rífa hana. Borgin reynir að hafa hraðar hendur í málinu þar sem brýnt er að fá niðurstöðu sem fyrst. Þetta segir Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og útilífsráðs Reykjavíkurborgar.

Tilkynnt var um það fyrr í mánuðinum að til stæði að rífa stúkuna, sem er af mörgum talin eitt helsta kennileiti borgarinnar, vegna bágborins ástands hennar. Margir gestir laugarinnar hafa hins vegar lýst óánægju sinni með þau áform en stúkan hefur staðið við laugina frá árinu 1968. Rúmlega 300 manns hafa skrifað undir undirskriftasöfnun þar sem Reykjavíkurborg er hvött til að hlífa stúkunni.

Heimild: Mbl.is