Home Fréttir Í fréttum Komin með lóð undir eitt stærsta gagna­ver landsins

Komin með lóð undir eitt stærsta gagna­ver landsins

25
0
Komin með lóð undir eitt stærsta gagna­ver landsins
Tom Frost, forstjóri EyrieDC, og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings.

Komin með lóð undir eitt stærsta gagna­ver landsins

EyrieDC og Norðurþing undirrituðu í gær lóðasamning til fimmtíu ára á Bakka við Húsavík þar sem félagið hyggst reisa 120 MW gagnaver. Gert er ráð fyrir fimmtíu föstum störfum þegar verið verður komið í fullan rekstur.

Í september greindi Vísir frá því að til stæði að reisa gagnaverið sem verður eitt það stærsta á Íslandi. Gert er ráð fyrir að uppbyggingin kosti um 120 milljarða króna.

Lóðarleigusamningurinn var undirritaður í gær og stefnir EyrieDC að því að hefja framkvæmdir árið 2027. Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins.

„Samhliða undirrituðu aðilar samning um samstarf við nærsamfélagið. Hann kveður á um árlegt framlag EyrieDC til samfélagssjóðs sem ætlað er að styðja við menntun, atvinnulíf og samfélagsverkefni í Norðurþingi. Sjóðurinn getur meðal annars stutt starfsnám, veitt námsstyrki og styrkt verkefni sem efla atvinnulíf og birgja á svæðinu. Hann getur einnig stutt æskulýðs-, íþrótta- og menningarstarf og verkefni á sviði umhverfismála og sjálfbærni. Þá getur hann lagt fé til innviða- og samgönguverkefna sem nýtast nærsamfélaginu,“ segir í tilkynningu frá EyrieDC.

Frá vinstri: Reuben Barclay hjá EyrieDC, Arnór Bergur Kristinsson hjá EyrieDC, Þóra Helgadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá EyrieDC, Michael Ozersky hjá EyrieDC, Björn Gíslason hjá Norðurþingi, Bergþór Bjarnason, sveitastjóri Norðurþings, Tom Frost, forstjóri EyrieDC og Bertie Cole hjá EyrieDC.

Haft er eftir Bergþóri Bjarnasyni, sveitarstjóra Norðurþings, að það hafi skipt máli að aðstandendur félagsins hafi reynslu bæði af þróun og fjármögnun stórra innviðaverkefna.

„Með þessum langtímasamningi leggjum við grunn að umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu. Báðir aðilar vilja að fyrirhuguð starfsemi nýtist íbúum Norðurþings til lengri tíma og lögðu því áherslu á að samhliða lóðarúthlutuninni yrði samið um samstarf við nærsamfélagið. Það er því afar ánægjulegt að undirrita báða samningana í dag,“ segir Bergþór.

Gagnaverið verður byggt í fjórum 30MW áföngum. Fyrsti áfanginn verður tekinn í notkun árið 2028.

„Við höfum unnið að undirbúningi gagnaversins á Bakka í meira en tvö ár og höfum verið í nánu samstarfi við Norðurþing undanfarna mánuði. Undirritunin í dag er því stór áfangi fyrir okkur. Samningurinn tryggir félaginu langtímaréttindi að lóðinni og er mikilvæg forsenda fyrir næstu skrefum í uppbyggingu gagnaversins. Við þökkum Norðurþingi fyrir traustið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ er haft eftir Tom Frost, forstjóra EyrieDC.

Heimild: Visir.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 120 milljarða gagnaver á Bakka

Efni: Komin með lóð undir eitt stærsta gagna­ver landsins