120 milljarða gagnaver á Bakka
EyrieDC hyggst reisa nýtt gagnaver á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík en verkefnið var kynnt á fundi í bænum fyrr í dag ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi.
Í fréttatilkynningu segir að um mjög umfangsmikið verkefni sé að ræða sem hafi verið í þróun í meira en tvö ár. Gert er ráð fyrir að heildarafkastageta gagnaversins verði 120 MW og verður það byggt upp í fjórum 30 MW áföngum.
Gagnaverssvæðið verður um tveir hektarar að stærð.
Heildarkostnaður verkefnisins er samkvæmt tilkynningunni áætlaður nálægt einum milljarði Bandaríkjadala, eða rúmir 120 milljarðar króna. Þar er ekki meðtalin fjárfesting viðskiptavinar EyrieDC í upplýsingatæknibúnaði, sem mun að öllum líkindum nema margfaldri þeirri fjárhæð.
Framkvæmdir eiga að hefjast árið 2027 og rekstur árið 2028. Framkvæmdatíminn verður um tvö ár.

Raforka tryggð
Í tilkynningunni segir að raforka fyrir verkefnið hafi verið tryggð frá Landsvirkjun og verður hún afhent í gegnum mannvirki Landsnets sem eru við hlið lóðar EyrieDC.
Verkefnið mun nýta raforku sem nú er ónýtt og ekki í notkun samkvæmt tilkynningunni.
„Aðstandendur verkefnisins líta á uppbygginguna sem einstakt tækifæri fyrir Ísland til að styrkja stöðu sína í fremstu röð í hátækniiðnaði í Evrópu. Aðgangur að endurnýjanlegri orku, öflugir innviðir og staðsetning landsins skapa að þeirra mati sterkar forsendur fyrir uppbyggingu stafrænnar innviðastarfsemi af þessari stærðargráðu,“ segir í tilkynningunni.
Samningur við viðskiptavin
Þar segir jafnframt að EyrieDC hafi þegar gert langtímasamning við einn viðskiptavin um 100% afkastagetu gagnaversins. Þar er samkvæmt tilkynningunni um að ræða leiðandi bandarískt fyrirtæki á sviði skýja og gervigreindarinnviða.
Í tilkynningunni er einnig rætt um samstarfsaðila og sagt að EyrieDC sé flókið og tæknilega háþróað verkefni og uppbygging þess byggi á nánu samstarfi við fjölmarga aðila. „Þar má nefna Landsvirkjun, Landsnet, FARICE og sveitarfélagið Norðurþing. Þá koma COWI, Arkís og LEX að verkefninu sem tæknilegir og lögfræðilegir ráðgjafar og Mannverk annast framkvæmdastýringu.“
Áhersla verður jafnframt lögð á samstarf við staðbundna undirverktaka og birgja eftir því sem verkefninu vindur fram.
50 föst störf
Uppbyggingin verður umfangsmikil eins og tilkynningin greinir frá og þegar framkvæmdir standa sem hæst er gert ráð fyrir allt að 400 til 500 sérhæfðum starfsmönnum við verkefnið. Þegar gagnaverið verður komið í fullan rekstur er gert ráð fyrir um 50 föstum störfum.
EyrieDC hefur gert samkomulag við sveitarfélagið Norðurþing um samfélagslegt framlag í tengslum við verkefnið. Í tilkynningunni segir að samkvæmt því muni félagið meðal annars leggja áherslu á að ráða fólk af svæðinu og leggja sitt af mörkum til samfélagsins með öðrum jákvæðum hætti.
Einnig er gert ráð fyrir að varmi sem myndast við rekstur gagnaversins verði endurnýttur af öðrum framtíðarnotendum á iðnaðarsvæðinu á Bakka. „Slík nýting getur skapað frekari tækifæri til atvinnuuppbyggingar ásamt því að auka nýtingu þeirra auðlinda og innviða sem fyrir eru á svæðinu.”

Á Bakka hefur þegar verið byggt upp iðnaðarsvæði og umtalsverðir innviðir vegna starfsemi kísilverksmiðju PCC sem stöðvaðist í fyrra, en eins og fram hefur komið í fréttum nýlega er endurræsing kísilversins ekki í sjónmáli. „Sveitarstjórn Norðurþings hefur lýst vilja til þess að sjá gagnaver byggt upp á svæðinu,“ segir í tilkynningunni.
Tækifæri í innviðum
„EyrieDC sér tækifæri í að nýta þá innviði og iðnaðarsvæði sem þegar eru til staðar á Bakka undir nýja tegund atvinnustarfsemi, í stað þess að byggja slíka uppbyggingu frá grunni annars staðar. Þar skipta meðal annars máli höfnin, göngin, flutningskerfi raforku og nálægð við raforkuframleiðslu.
Jákvæð viðbrögð og samstarf við sveitarfélagið Norðurþing vógu einnig þungt við staðarvalið. Þeir innviðir sem þegar eru til staðar gera jafnframt kleift að hefja framkvæmdir og rekstur á mun skemmri tíma en ella. EyrieDC hefur einkarétt á lóðinni samkvæmt samkomulagi við sveitarfélagið.“
Í tilkynningunni er sagt frá því að lokum að Akur DC sé eigandi og framkvæmdaraðili EyrieDC og standi að uppbyggingu verkefnisins. „Akur Capital er alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í London og sérþekkingu á gagnaverum, stafrænum innviðum, orku og fjármögnun stórra innviðaverkefna.
Félagið er jafnframt rótgróinn fjárfestir í innviðaverkefnum og sérfræðingur á fjármagnsmörkuðum. Akur Capital var stofnað árið 2012 og hefur sterk og langvarandi tengsl við Ísland og víðtæka reynslu hér á landi. Nafn félagsins er dregið af Akureyri,” segir að lokum í tilkynningunni.
Heimild: Mbl.is
Efni: 120 milljarða gagnaver á Bakka












