Hótelturninn: Tjónið hugsanlega gríðarlegt
Arion banki segir ekki tilefni til markaðstilkynningar en bankinn segist muni bregðast við breyti eitthvað því mati. Framtíð sautján hæða hótelturnsins við Skúlagötu 26 er í mikilli óvissu.
Ítarleg umfjöllun er um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í dag.
Arion banki sagði í gær, í skriflegu svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins, að bankinn vinni nú með skiptastjóra að lausn málsins og leiti nýs framkvæmdaaðila.
Í svari bankans um fjárhæð lána til verkefnisins og um hugsanlega tilkynningu til kauphallar segir þetta:
„Við höfum ekki gefið upp hvað bankinn hefur lánað til verkefnisins. Ljóst má þó vera að við höfum ekki talið tilefni til sérstakrar markaðstilkynningar en munum bregðast við ef eitthvað breytir því mati.“
Sérstakrar markaðstilkynningar en munum bregðast við ef eitthvað breytir því mati.“
Í fréttinni er fjallað um umfang myglu í húsinu. Í svari Arion banka segir að nú sé verið að skoða skilvirkustu leiðina til að skipta út þeim einingum sem eru skemmdar.
Heimildarmenn Viðskiptablaðsins sem þekkja til verkefnisins eru svartsýnni en bankinn á viðgerðir á turninum.

Viðskiptablaðið greindi frá því byrjun mánaðarins að fimm tryggingabréf hvíldu á turninum að fjárhæð 18,5 milljarða króna.
Rétt við hlið turnins var systurfélag hótelfélagsins að reisa íbúðir.
Áhvílandi tryggingabréf Arion banka á þeim hluta, auk fjölda annarra eigna, eru 5,5 milljarðar króna.
Gæta verður að því að lán að baki tryggingabréfi eru gjarnan lægri en sjálft bréfið.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Félög tengd hótelturni lýst gjaldþrota
Efni: Hótelturninn: Tjónið hugsanlega gríðarlegt












