Home Fréttir Í fréttum Vilja aðra Vest­manna­eyja­ferju til við­bót­ar

Vilja aðra Vest­manna­eyja­ferju til við­bót­ar

38
0
Vilja aðra Vest­manna­eyja­ferju til við­bót­ar
Aðsend / Leifur Harðarson

Vilja aðra Vest­manna­eyja­ferju til við­bót­ar

Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins og fimm aðrir þingmenn Suðurkjördæmis úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hafa lagt fram tillögu á Alþingi um smíði eða kaup á aukaferju til siglinga milli Vestmannaeyja og lands.

Flutningsmenn vilja að innviðaráðherra verði falið að undirbúa slíka ferju yfir sumartímann sem jafnframt verði varaferja fyrir Herjólf og Baldur. Bent er á að ferjusamgöngur við Vestmannaeyjar séu mikilvægur hluti af samgöngukerfinu, ljóst sé að Herjólfur anni ekki eftirspurn, einkum á sumrin. Dæmi séu um langa biðlista og að íbúar komist ekki upp á land um helgar þar sem fullbókað sé í allar ferðir.

Heimild: Ruv.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Nýr Herjólfur verður tvinnferja

Efni: Vilja aðra Vest­manna­eyja­ferju til við­bót­ar