Home Fréttir Í fréttum Gluggarnir verði sérsmíðaðir

Gluggarnir verði sérsmíðaðir

150
0
Gluggarnir verði sérsmíðaðir
Svona á Hús málarans í Bankastræti að líta út eftir að þriðja hæðin hefur verið endurbyggð. Tölvumynd/Nordic Office of Architecture

Gluggarnir verði sérsmíðaðir

Breytingar á Húsi málarans í Bankastræti 7a þurfa að fara í grenndarkynningu. Þetta er niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur en erindi vegna málsins var lagt fram á fundi skipulagsfulltrúa nýverið. Til stendur að rífa þriðju hæð hússins og endurbyggja hana.

Í umsögn skipulagsfulltrúa var meðal annars lögð fram ný umsögn Minjastofnunar Íslands þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á húsinu. Minjastofnun mælir hins vegar með því að allir gluggar á nýrri 3. hæð verði úr timbri og sérsmíðaðir í samræmi við glugga 2. hæðar. Undir þetta tekur skipulagsfulltrúi.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hús málarans verði hækkað

Efni: Gluggarnir verði sérsmíðaðir