Home Fréttir Í fréttum Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum

Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum

137
0
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Fjölbýlishús tekur á sig mynd í vesturbæ Vestmannaeyja. Steyptir veggir eru komnir upp og uppsláttarmót enn á hluta byggingarinnar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum

Nýjar undirstöður, hús sem taka á sig mynd og gröfur að störfum blasa við í nýju myndbandi Halldórs B. Halldórssonar frá Vestmannaeyjum. Myndbandið, „Framkvæmdir 30 okt 2026“, gefur innsýn í framkvæmdir á nokkrum stöðum í bænum.

Verkin eru mislangt komin. Sums staðar stendur jarðvinna yfir en annars staðar hafa botnplötur verið steyptar og lagnir lagðar. Þá rísa steyptir veggir innan um uppsláttarmót, vinnupalla og krana. Meðal verkefna sem sjást á meðfylgjandi myndum er bygging fjölbýlishúss í vesturbænum.

Halldór sýnir bæði framkvæmdirnar í nærmynd og yfirlit yfir byggðina, með fjöllin og sjóinn í bakgrunni.

Heimild: Eyjafrettir.is

Efni: Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum