Home Fréttir Í fréttum Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði

Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði

55
0
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Mynd: RÚV – Elsa María Guðlaugs Drífudóttir

Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði

Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þegar ung kona fékk rafstraum í tengivirki í lok september. Slysið er þegar til rannsóknar hjá lögreglu, HMS og Vinnueftirlitinu.

Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til rannsóknar hjá lögreglu, HMS og Vinnueftirlitinu.

Í svari Landsnets við fyrirspurn fréttastofu segir að fyrirtækið láti gera ytri úttekt á slysinu til að greina atburðarrás og orsakir þess og láta leggja til úrbætur og eftirfylgni. Sú vinna standi yfir og geti tekið nokkrar vikur.

Konan var flutt beint til Noregs í kjölfar slyssins þar sem hún gekkst undir aðgerð. Í svari til fréttastofu segir að Landsnet veiti, af persónuverndarástæðum, ekki upplýsingar um heilsufar, líðan eða læknismeðferð starfsmannsins.

Heimild: Ruv.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði

Efni: Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði