Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova
Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir í Álfabakkanum þar sem Nova breytir bíóhúsinu í höfuðstöðvar fjarskiptafyrirtækisins.

Vísir/Anton Brink
„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttastofu.

Vísir/Anton Brink
Líkt og sjá má á myndunum sem Anton Brink, ljósmyndari Vísis, tók af húsinu í dag er um umfangsmiklar breytingar að ræða enda meira en að segja það að breyta heilu bíóhúsi. Sylvía tekur fram að það sé umhverfisvænna að breyta húsinu heldur en að jafna það við jörðu og byggja nýtt.

Vísir/Anton Brink
Stefnan er sett á að flytja starfsemina í nýja húsið fyrripart næsta árs. Þann 31. janúar var síðasta sýningin sýnd í Sambíóunum Álfabakka eftir að hafa verið þar til húsa í 43 ár.

Vísir/Anton Brink
Heimild: Visir.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Bíóhöllin í Mjódd verður stækkuð
Efni: Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova












