Home Fréttir Í fréttum Þurfa líklega að rífa hluta Reykjalundar

Þurfa líklega að rífa hluta Reykjalundar

43
0
Þurfa líklega að rífa hluta Reykjalundar
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar, segir enn hafi ekki verið ákveðið hvað gert verður við alla þá byggingarhluta sem enn eru lokaðir. Samsett mynd

Þurfa líklega að rífa hluta Reykjalundar

Enn eru um 20% húsnæðis Reykjalundar lokuð vegna viðhaldsvanda og ekki er útilokað að rífa þurfi hluta þess húsnæðis þar sem mygla hefur greinst.

Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Reykjalundar segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvað verði gert við alla þá byggingarhluta sem enn eru lokaðir.

„Eitthvað þarf hreinlega að rífa. Ég sé fram á að við munum rífa eitthvað af því sem er ónýtt,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Hún segir mygluna sums staðar koma úr jarðvegi og upp í grunn og botnplötu hússins. Dren hafi í upphafi ekki verið lagt alls staðar við húsið þegar það var byggt og því sé líklega ekki hægt að laga allt myglusýkta húsnæðið.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 20% af öllu húsnæði Reykjalundar lokað vegna viðhaldsþarfar

Efni: Þurfa líklega að rífa hluta Reykjalundar