Home Fréttir Í fréttum „Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin“

„Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin“

85
0
„Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin“
Söfnuðurinn harmar afturköllun lóðarinnar. Ljósmynd/ARKITEO

„Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin“

Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi harmar ákvörðun borgarráðs um að afturkalla lóðaúthlutun safnaðarins að Mýrargötu 21-23. Fjármagn liggi fyrir til byggingar kirkju og framkvæmdir gætu hafist á morgun. Það eina sem vantar sé byggingarleyfi.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá rétttrúnaðarkirkjunni.

Borgarráð samþykkti í vikunni að afturkalla lóðaúthlutunina frá árinu 2008 og einnig lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi á þeim forsendum að langur tími hafi liðið frá úthlutun og að ekkert hafi enn verið byggt á lóðunum.

Teikningar samþykktar í september

Rétttrúnaðarkirkjan segir ákvörðunina hafa komið á óvart. Söfnuðurinn hafi átt í virkum og reglubundnum samskiptum við stjórnsýslu borgarinnar og viðkomandi svið vegna framkvæmdanna.

„Um árabil hefur söfnuðurinn unnið að undirbúningi kirkjubyggingar á lóðinni, þar á meðal að hönnun hússins og öllum nauðsynlegum verkfræðiteikningum. Þær síðustu voru samþykktar af Reykjavíkurborg 7. september 2026, fyrir einum mánuði síðan. Allri nauðsynlegri vinnu er lokið og umsóknin hefur verið tekin til afgreiðslu,“ segir í yfirlýsingunni.

Fyrri tafir hafi ekki stafað af áhugaleysi. Covid-19-faraldurinn hafi stöðvað verkið um langt skeið. Þá hafi hönnuninni einnig verið breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu og upphafleg stærð byggingarinnar minnkuð. Auk þess hafi Reykjavíkurborg breytt deiliskipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.

Segjast hafa uppfyllt sinn hluta

„Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin. Hún var blessuð af háttsettum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni. Á hverjum sunnudegi biðjum við saman á lóðinni, í lítilli bráðabirgðakapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Í hugum trúaðra er lóðin þegar heilagur staður sem á sérstakan stað í hjörtum margra.“

Fram kemur að borgin hafi óskað eftir tímaáætlun fyrir næsta áfanga. Söfnuðurinn hafi svarað því til að allri undirbúningsvinnu væri lokið og að það eina sem vantaði væri byggingarleyfið. Söfnuðurinn hafi uppfyllt sinn hluta.

„Við teljum að yfirvöld eigi að fara með þetta mál af mikilli varfærni og að vægari úrræði séu möguleg,“ segir í yfirlýsingunni og jafnframt er óskað eftir samtali við stjórnvöld svo verkefnið geti orðið að veruleika.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Borgin aftur­kallar lóðir trúfélaganna

Efni: „Lóðin hefur aldrei verið yfirgefin“