Staða framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri
Upphaf framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri var vinna við nýtt bílastæði sem hefur sú vinna gengið vel og er stefnt á malbikun á næstu vikum.
“Þegar framkvæmdum við nýtt bílastæði er lokið að mestu hefst jarðvinna í grunni á núverandi bílastæði sunnan sjúkrahússins vegna byggingar á 13.600 m² nýbyggingu sem tengist með tengigangi við núverandi byggingar,”segir Gunnar Líndal Sigurðsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.
Í nýbyggingunni, sem tengist, núverandi húsnæði verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum og þá verður til staðar glæsileg nútíma dag- og göngudeild geðdeildar.
Heimild: NLSH.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
Efni: Staða framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri












